Síðdegisútvarpið 7. desember
Manage episode 397908719 series 1394184
RÚV에서 제공하는 콘텐츠입니다. 에피소드, 그래픽, 팟캐스트 설명을 포함한 모든 팟캐스트 콘텐츠는 RÚV 또는 해당 팟캐스트 플랫폼 파트너가 직접 업로드하고 제공합니다. 누군가가 귀하의 허락 없이 귀하의 저작물을 사용하고 있다고 생각되는 경우 여기에 설명된 절차를 따르실 수 있습니다 https://ko.player.fm/legal.
Áfangaheimilið Brú er að finna á Höfðabakka í Reykjavík en þar eru einstaklingsíbúðir fyrir öll kyn sem hafa lokið langtímameðferð á meðferðarheimilinu Hlaðgerðarkoti og leggja kapp á að byggja brú inn í framtíð án vímuefna, einn dag í einu. Í sumar var tilkynnt að til stæði að loka áfangaheimilinu eftir að Félagsbústaðir sem eru alfarið í eigu Reykjavíkurborgar sögðu upp leigusamningi við Samhjálp og nú er komið að þeim tímapunkti. Edda Jónsdóttir er framkvæmdastjóri Samhjálpar og hún segir okkur hvert framhaldið er. Nú eru eflaust fjölmörg heimili landsmanna að komast í jólabúninginn, gardínur mögulega komnar upp, smákökuilmur í eldhúsinu og jóladúkarnir á strauborðinu. Það er alla vega allt að verða tilbúið í híbýlum Hússtjórnarskólans við Sólvallagötu í Reykjavík þar sem nemendur taka á móti gestum í opnu húsi á laugardaginn. Þar verður hægt að líta á handverkssýningu nemenda ásamt því að gæða sér á kaffihlaðborði með heitu súkkulaði og öllu tilheyrandi sem nemendur standa fyrir. Skólameistarinn Marta María kíkir til okkar í heimsókn og segir okkur frá aðventunni í Hússtjórnarskólanum. Er almenningur hættur að treysta stjórnvöldum og stjórnmálafólki? Er fólk orðið meira tortryggið í garð stjórnvalda - eða ríkir kannski fullkomið vantraust í þeirra garð? Þetta eru meðal þeirra spurninga sem verða á vörum þátttakenda í hádegisfundi Félags stjórnmálafræðinga og Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála um traust fólks til stjórnvalda á morgun. Viktor Orri Valgarðsson, nýdoktor í stjórnmálafræði við Háskólann í Southampton, mun spyrja sig að þessu í erindi sínu á fundinum og hann segir okkur betur frá fundinum hér rétt á eftir. Í Morgunblaðinu í dag birtist grein eftir formann verkfræðingafélags Íslands Svönu Helen Björnsdóttur en þar kemur fram að það sé mikið áhyggjuefni meðal verkfræðinga og tæknifræðinga hve stjórnmálamenn hafa lítinn skilning á mikilvægi djúprar fagþekkingar, tæknilegra rannsókna og hagnýts rannsóknarsamtarfs innlendra og erlendra aðila þegar kemur að byggingarrannsóknum á Íslandi. Árni B. Björnsson er framkvæmdastjóri Verkfræðingafélagsins, hann upplýsir okkur um stöðu mála. Á aðventu 2023 mun Einar Skúlason ganga gömlu póstleiðina frá Seyðisfirði til Akureyrar með jólakort og jólakveðjur til fólks og fyrirtækja á Akureyri í farteskinu til styrktar Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis. Við heyrum í Einari í lok þáttar. Og við byrjum á glugga út í heim en hingað er kominn Oddur Þórðarson fréttamaður af fréttastofu RÚV.
…
continue reading
72 에피소드