9.nóvember
Manage episode 397908738 series 1394184
RÚV에서 제공하는 콘텐츠입니다. 에피소드, 그래픽, 팟캐스트 설명을 포함한 모든 팟캐스트 콘텐츠는 RÚV 또는 해당 팟캐스트 플랫폼 파트너가 직접 업로드하고 제공합니다. 누군가가 귀하의 허락 없이 귀하의 저작물을 사용하고 있다고 생각되는 경우 여기에 설명된 절차를 따르실 수 있습니다 https://ko.player.fm/legal.
Einn af hverjum 25 íslendingum er með meðferðartækan erfðabreytileika sem veldur því að þeir lifa skemur en þeir sem bera hann ekki. Með því að finna þessa breytileika og upplýsa viðkomandi einstaklinga svo þeir geti leitað sér lækninga má auka lífslíkur til muna. Fræðslufundur Íslenskrar erfðagreiningar hefst í dag klukkan 17 í húsnæði þeirra á Sturlugötu 8. Þar mun Kári Stefánsson forstjóri ÍE greina frá niðurstöðum erfðafræðirannsóknarinnar í íslensku þjóðinni og tengslum þeirra við ævilengd og auk þess munu aðrir halda þarna erindi tengt þessu efni. Við heyrum í Kára eftir smá stund. Nánast sama dag og breski herinn hernam Ísland þann 10. mai 1940 kviknuðu miklar áhyggjur af samgangi ungra íslenskra kvenna og hermannanna. Þær snéru einkum að ósæmilegri hegðan stúlknanna sem margir töldu að ógnaði íslenskir menningu og þjóðerni. Í nýrri bók Báru Baldursdóttur sagnfræðings er sagt frá þessum örlagatíma í sögu þjóðarinnar. Bára kemur til okkar á eftir og segir okkur betur frá. Við ætlum að hringja norður á Akureyri og heyra í Hildi Eir Bolladóttur sóknarpresti hjá Akureyrarkirkju en á sunnudaginn er feðradagurinn og af því tilefni verður feðradagsmessa í Akureyrarkirkju, meira um það á eftir. Eins og alltaf á fimmtudögum þá skellum við okkur í MEME vikunnar en umsjónarmaður þess er okkar eini sanni Atli Fannar Bjarkason. Sýningar eru hafnar á nýju íslensku barnaleikriti í Sláturhúsinu á Egilsstöðum en leikritið heitir Hollvættir og er eftir Þór Tulinius leikara og leikstjóra. Þór kemur til okkar á eftir og segir okkur frá þessu verki auk Sævars Sigurgeirssonar sem er höfundur söngtexta í sýningunni. Grindvíkingar sváfu lítið síðastliðna nótt. Öflugasti skjálftinn í hrinunni sem hófst fyrir hálfum mánuði á Reykjanesskaga varð rétt fyrir klukkan eitt og mældist 4,8. Engin merki eru um að kvika færist nær yfirborði en ákveðið hefur verið að loka Bláa lóninu í viku. Margir íbúar svæðisins eru orðnir langþreyttir á skjálftunum auk þess sem einhverjir eru óttaslegnir. Við ræddum við Pál Val Björnsson íbúa í Grindavík fyrr í vikunni sem sagði að skjálftarnir og óvissan tæki á en auk þess það að hlusta á hina og þessa sérfræðinga og vísindamenn tjá sig um stöðu mála og mismunandi sviðsmyndir í fjölmiðlum. Á línunni hjá okkur er Víðir Reynisson.
…
continue reading
72 에피소드