Jónas Hallgrímsson og ljóðið Illur lækur
Manage episode 427270061 series 3031432
RÚV에서 제공하는 콘텐츠입니다. 에피소드, 그래픽, 팟캐스트 설명을 포함한 모든 팟캐스트 콘텐츠는 RÚV 또는 해당 팟캐스트 플랫폼 파트너가 직접 업로드하고 제공합니다. 누군가가 귀하의 허락 없이 귀하의 저작물을 사용하고 있다고 생각되는 경우 여기에 설명된 절차를 따르실 수 있습니다 https://ko.player.fm/legal.
Margir kannast við ljóð Jónasar Hallgrímssonar „Illur lækur" sem hefst á orðunum „Nú fór illa, móðir mín". Leikin verða lög við þetta ljóð eftir nokkur íslensk tónskáld. Þar á meðal er Atli Heimir Sveinsson, en lag hans er til í tveimur útgáfum, en Atli Heimir samdi fyrri útgáfu lagsins þegar hann var ekki nema 16 ára. Ljóð Jónasar er byggt á spænsku þjóðkvæði og í þættinum verður sagt frá rannsóknum Sveins Yngva Egilssonar, en honum tókst að finna spænska frumkvæðið eftir nokkra leit. Þegar það er skoðað kemur í ljós að kvæði Jónasar leynir á sér, við fyrstu sýn virðist það vera saga um litla stelpu sem bleytir kjólinn sinn í læknum, en í rauninni hefur ljóðið tvíræða merkingu. Einnig verður flutt hljómsveitarsvíta Páls Ísólfssonar „Úr myndabók Jónasar Hallgrímssonar", en hún kom nýlega út á geislaplötu hjá Chandos. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir, en lesarar eru Anna Marsibil Clausen og Snorri Rafn Hallsson.
…
continue reading
16 에피소드