Rokkland 공개
[search 0]
Download the App!
show episodes
 
Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og í haust er 21 ár liðið síðan hann fór fyrst í loftið.
  continue reading
 
Loading …
show series
 
Það eru tvær kraftmiklar konur sem eru í aðalhlutverki í Rokklandi vikunnar. Annarsvegar er það Nanna Bryndís Hilmarsdóttir úr Garðinum, Nanna úr Of Monsters And Men sem var að senda frá sér fyrstu sólóplötuna sína. Platan heitir How to start a Garden og er að margra mati virkilega vel heppnuð og flott plata. Og svo er það Alona Dmukhovska (Helen G…
  continue reading
 
Elvis Costello spilar í Eldborg eftir sléttar tvær vikur. Hann kemur með píanóleikaranum Steve Nieve sem er búinn að spila með honum síðan 1977, og Nick Lowe sem stjórnaði upptökum á fyrstu plötunum hans og samdi lagið What?s so funny about Peace, Love and understanding sem er eitt af þekktustu lögum sem Elvis hefur sungið. Ég spjallaði við Elvis á…
  continue reading
 
Í Rokklandi dagsins ætla ég að koma við ansi víða og tónlistin sem við heyrum í dag er ansi fjölbreytt. 50?s bíópopp, rafdrifinn rímnakveðskapur, rokkkóramúsík, draumapopp á þjóðlagagrunni og allt mögulegt. Kristín Lárusdóttir segir okkur frá nýju plötunni sinni sem heitir Kría. Þar er selló í aðalhlutverki en líka raf-græjur ýmiskonar og rímnakveð…
  continue reading
 
Gestur Rokklands í dag er Jón Ólafsson sem fagnaði sextugsafmæli sínu með stjörnum prýddum risa-tónleikum í Eldborg um síðustu helgi. Jón á ótrúlegan feril að baki sem alhliða tónlistarmaður, laga og textahöfundur, sem hluti af Nýdönsk, sem hljómsveitarstjóri og upptökustjóri ótal platna með hinum og þessum ? hann gerði síðustu plöturnar með Ragga …
  continue reading
 
Hljómsveitin Jethro Tull er í aðalhlutverki í Rokklandi í dag en Jethro Tull heldur tónleika í Eldborg í Hörpu 4. maí nk ? þrettándu tónleikana sína á Íslandi. Hljómsveitin spilaði fyrst í íþróttahúsinu á Akranesi 1992 og hefur svo spilað í Háskólabíói, Laugardalshöll og Hörpu, en síðast þegar Jethro Tull spilaði á Íslandi var það fyrir jólin 2016 …
  continue reading
 
Bandaríska hljómsveitin Wilco var stödd á íslandi um páskana og spilaði fjórum sinnum á þremur dögum. Þrisvar í eldborg í Hörpu og einu sinni rétt hjá Selfossi. Tónleikagestirnir voru mestmegnis frá útlöndum ? aðdáendur Wilco héðan og þaðan úr heiminum en flestir frá Bandaríkjunum. Rokkland tók þátt í þessu ævintýri af lífi og sál. Við heyrum í Wil…
  continue reading
 
Rokklandi vikunnar kemur við sögu bandaríska hljómsveitin Wilco sem spilar 3 kvöld í röð í Eldborg í Hörpu núna í vikunni; skírdag, föstudaginn langa og laugardag, og það er uppselt! Svo er það hljómsveitin Kvikindi sem hlaut verðlaun fyrir plötu ársin á Íslensku tónlistarverðlaununum á dögunum - kvikindi kemur í heimsókn. Gítarleikarinn Tommy Emma…
  continue reading
 
Eyjólfur Kristjánsson er gestur Rokklands í dag ? Eyfi úr Hálft í Hvoru og Bítlavinafélaginu ? Eyfi sem samdi lagið um Nínu og fór með það í Eurovison á sínum tíma með Stebba Hilmars vini sínum. Við Eyfi ætlum að spjalla saman í dag um músík, æskuna, pólitík, fyrstu ástina, Bítlana og Lennon, Kerlingafjöll, golf, fyrsta lagið, fyrsta giggið, Bergþó…
  continue reading
 
Emiliana Torrini er gestur Rokklands í dag en hún var að senda frá sér plötu sem heitir Racing the storm með belgísku hljómsveitinni The Colorist Orchestra sem hún hefur unnið talsvert með undanfarin ár og spilað með á Íslandi t.d. Við spjöllum saman og kynnumst nýju plötunni auk þess sem við rifjum upp gamla viðtal sem Lísa Pálsdóttir tók við Emil…
  continue reading
 
Í Rokklandi í dag skoðum við lögin sem eru tilnefnd til Óskarsverðlauna í ár, besta lag frumsamið fyrir kvikmynd en Óskarsverðlaunin verða afhent í nótt í Los Angeles. Jakob Frímann Magnússon kemur í heimsókn í seinni hluta þáttarins og segir okkur frá plötunni Jack Magnet sem kom út árið 1981 og hann ætlar að flytja í heild sinni ásamt frábærri hl…
  continue reading
 
Í Rokklandi dagsins verður boðið upp á músík með ýmsum, fólki eins og The National, Nönnu, Cat Stevens, George Harrison, U2, HEIDRIK sem syngur Björk, Blood Harmony úr Svarfaðardal, Gryff Rhys frá Wales, Herbert Guðmundsson úr Reykjavík ? og svo koma þeir í heimsókn þeir Sigurdur Sigurdsson og Pálmi Sigurhjartarson úr blús-rokk-sveitinni Kentár sem…
  continue reading
 
Farið yfir sögu Jeff Buckley og fjallað um Grace, einu breiðskífu hans. Einnig eru leiknar upptökur sem gerðar voru á heiðurstónleikum sem fóru fram á Gauki á Stöng í lok árs 2014. Meðal þeirra sem fluttu þar lög eftir Jeff Buckley voru Valdimar Guðmundsson, Eyþór Ingi og fleiri. Umsjón: Matthías Már Magnússon…
  continue reading
 
Plata ársins 2022 hjá Breska tónlistartímaritinu Mojo heitir Dear Scott og tónlistarmaður heitir Michael head ? Michael Head & The Red Elastic Band. Hann er 61 árs fyrrum heróínfíkill. Við kynnumst honum og plötunni í þættinum. Við heyrum líka í Árný Margréti á Eurosonic Festival sem fór fram í janúar. Rifjum upp viðtal við Björk frá 2003 heyrum í …
  continue reading
 
Í Rokklandi dagins verðum við að mestu á Spáni með Cesar Andion frá Live Nation og Spanish Wave á Spáni (útflutningsskrifstofu spánskrar tónlistar) og heyrum fullt af tónlist frá Spáni. Við ræddum saman á Eurosonic Festival í Hollandi í janúar. Ólöf Arnalds er með söfnun í gangi á Karolifa Fund fyrir nýrri plötu, Tár í morgunsárið. Við heyrum 2 lög…
  continue reading
 
Í Rokklandi dagsins rifjum við upp viðtal við Jeff Beck úr Rokklandi frá því fyrir áratug þegar þessi mikli meistari rafgítarsins kom til Íslands í fyrsta og eina skiptið. Við spjölluðum um Yardbirds, Rod Stewart, Rolling Stones, Led Zeppelin, um gildi þess að æfa sig og hvers vegna hann notaði ekki gítarneglur. Úför hans fór fram á föstudaginn í W…
  continue reading
 
Rokkland dagsins er númer 1300 í röðinni. Fyrsti þátturinn fór í loftið haustið 1995 og þættirnir eru flestir til. Í dag heyrum við brot úr nokkrum gömlum þáttum. Við byrjum á upphafi fyrsta þáttarins og förum svo hingað og þangað. Til Liverpool, Memphis, Á Glastonbury og Roskilde, á Stokkseyri, í símann, í Hörpu, í Laugardalshöll og þangað sem vil…
  continue reading
 
Í Rokklandi í dag er tveggja manna hljómsveitin Isafjørd atkvæðamest en Isafjørd samanstendur af tónlistarmönuunum Aðalbirni Tryggvasyni og Ragnari Sólberg, Adda úr Sólstöfum og Ragnari úr Sign. Þeir eru búnir að taka upp og gefa út plötu sem heitir Hjartastjaki undir nafninu Isafjørd en þeir eru báðir ættaðir frá Ísafirði. Tónlistin minnir á Sólst…
  continue reading
 
Árið 2022 er liðið og aldrei það kemur til baka. Í fyrsta Rokklandsþætti nýs árs rifja ég upp brot úr ýmsum Rokklandsþáttum ársins 2022. Þeir sem koma við sögu eru: ABBA U2 Eivor Una Torfa Stína Ágúst Egill Ólafsson Herbert Guðmundsson Árni Matthíasson Arnar Eggert Thoroddsen Prins Póló ofl.
  continue reading
 
Egill Ólafsson yfirþurs er gestur Rokklands í dag. Hann syngur ekki meir opinberlega segir hann, en hann syngur samt, semur, skrifar ljóð og sögur og lög. Hann var var að senda frá sér plötu á vinyl sem er eiginlega tvær plötur: Tu Duende og El Duende ? tvöfalt albúm þar sem sungið er á íslensku, ensku og spænsku. Hann segir okkur frá og við hlustu…
  continue reading
 
Lagasmiðurinn og gítarleikarinn, - tónlistarmaðurinn Guðmundur Jónsson varð 60 ára á árinu. Hann hélt upp á það með tónleikum í Háskólabíói, 22 október sl. og flutti með aðstoð góðs fólks mörg af sínum þekktustu lögum sem eru orðin mörg. Þekktust eru auðvitað lögin sem hann samdi fyrir hljómsveitina sína stóru ? Sálina Hans Jóns Míns, sem hann var …
  continue reading
 
Ellen Kristjáns og Steini Hjálmur og Una Torfa eru gestir Rokklands í dag. Við spjöllum saman og þau ætla að syngja og spila fyrir okkur í std. 12. Una er ein af okkar björtustu vonum, lagið hennar Fyrrverandi er eitt af lögum ársins 2022 að mrgra mati og lagið hennar En var mest spilaða lagið á Rás 2 í sumar. Una er að gera fyrstu stóru plötuna sí…
  continue reading
 
Í þessum þætt í dag eru þrjú mál á dagskrá; Smári Tarfur sem var einu sinni gítarleikari í Ylju og Quarashi sendi nýlega frá sér fimm mismunandi plötur, undir fimm nöfnum og í fimm mismunandi tónlistarstílum. Smári segir frá á eftir og við heyrum lög af þessum plötum. Það eru 80 ár í dag frá því að einn áhrifamesti gítarsnillingur sögunnar fæddist,…
  continue reading
 
Sigur Rós er stærsta og þekktasta hljómsveitin okkar íslendinga og ein allra magnaðasta hljómsveit sem við höfum átt. Sigur Rós er einstakt fyrirbæri ? fyrirmynd og viðmið fjölmargra hljómsveita um allan heim. Sigur Rós á aðdáendur um víða veröld og er núna komin HEIM til Íslands til að halda lokatónleika heimstónleikaferðar sinnar í Laugardalshöll…
  continue reading
 
Í Rokklandi í dag rifjum við upp þegar Jónas Sigurðsson gaf út plötuna Þar sem himin ber við haf ? sem hann gerði í samstarfi við fólkið sitt heima í Þorlákshöfn; Lúðrasveit Þorlákshafnar sem hann spilaði með þegra hann var strákur, og eldri-borgara kórinn Tóna og trix. Jónas hélt upp á 10 ára afmælið á föstudagskvöld með frábærum tónleikum í Háskó…
  continue reading
 
Bono var að gefa út bók ? ævisögu sem heitir Surrender ? 40 songs, one story. Óli P. Árni Matt, Arnar Eggert og Björk tala um Bono í Rokklandi í dag auk þess sem hann syngur og les upp úr bókinni sinni. Margrét Marteinsdóttir blaðakona á Stundinni sá og hitti Sigur Rós í Amsterdam í vikunni sem leið. Hún sendi Rokklandi póstkort með kveðju frá strá…
  continue reading
 
Herbert Guðmundsson var gestur Rokklands fyrir nokkrum vikum. Þá fórum við yfir fyrstu árin ? fram til þess tíma þegar hann gaf út smellinn mikla - Can?t walk away. Í dag er framhald. Við spjöllum um trúmál, Guð og Búdda, sölumennsku, ísgerð, gjaldþrot, 12 sporin, gleraugu, foreldra, Hollywood, fangavist og betrun, Svíþjóð og margt fleira.…
  continue reading
 
Orgelkvartettinn Apparat (Apparat Organ Quartet) er ótrúlega skemmtilegt fyrirbæri ? fjögur orgel og trommari. Þessi magnaða hljómsveit fagnar um þessar mundir 20 ára afmæli fyrstu plötunnar: Apparat Organ Quartet. Liður í hátíðahöldum eru tónleika í Tjarnarbíói á miðvikudaginn næsta, 26. Október, en þar mun hljómsveitin flytja plötuna í heild sinn…
  continue reading
 
Í Rokklandi í dag ætla ég að koma víða við og rifja upp eitt og annað ? eins og t.d. þegar Coldplay kom til Íslands 2001, og þegar Bob Dylan spilaði á Newport Folks Festival með hljómsveit 1965 og lýðurinn baulaði á hann. Ég ætla líka að tala aðeins um tónleikana sem ég var svo heppinn að fá að upplifa í París síðasta fimmtudag. Kolrassa Krókríðand…
  continue reading
 
Í Rokklandi í dag er þrennt á dagskrá: Andrei Freyr Viðarsson (Andri karate) segir okkur aðeins frá Thorton Moore og Sonic Youth, en Thurson Moore fyrrum forsprakki Sonic Youth er kominn til landsins og er með tónleika í Hljómahöll í Reykjanesbæ í kvöld! Svo er það SSSÓL sem ætlar að fagna 35 ára afmæli næsta laugardag með tónleikum í Háskólabíó ? …
  continue reading
 
Björk var að senda frá sér 10undu sólóplötuna sína; Fossora. Þetta er lífræn plata ? mikil jarðtenging, Björk segir að Fossora sé Sveppaplatan sín. Sveppirnir eru eins og internet skóganna segir hún. Platan er að mestu tekin upp á Íslandi, unnin á Covid-tímanum og flestir sem eru með Björk á plötunni eru íslenskir vinir og kunningar; Hamrahlíðarkór…
  continue reading
 
Það þekkja allir landsmenn Herbert Guðmundsson, söngvarann og gleðigjafann Herbert Guðmundsson. Hann er búinn að vera að syngja og skemmta fólki við allar mögulegar kringusmstæður áratugum saman. Herbert kom fram á stóra sviðinu á Þjóðhátíð í fyrsta sinn núna í ár og var gríðarlega vel tekið. Hann var vinsæll á níunda áratugnum þegar hann gaf út la…
  continue reading
 
Prins Póló og Gunnar Lárus Hjálmarsson koma í heimsókn í Rokkland í dag, en Prinsinn er búinn að taka upp 2 ný lög með uppáhalds hljómsveitinni sinni S.H. Draumi. Prinsinn var gestur Rokklands snemma í sumar og þar kom þessi hugmynd upp sem nú er orðin að veruleika. Við frumflytjum lögin Draumaprinsessan og Sjoppan í dag. Stórsveit Reykjavíkur held…
  continue reading
 
Nýjasta plata Snorra Helgasonar heitir Víðihlíð og samanstendur í raun af tveimur EP plötum sem komu út stafrænt í október í fyrra og apríl í ár. Lögin á plötunni samdi Snorri á tiltölulega stuttu tímabili í einni samfelldri innblásturssprengju segir hann í fréttatilkynningu - og eiga það flest sameiginlegt að vísa í umrót og tilfinningalega ringul…
  continue reading
 
Rokkland fór á G! Festival í Færeyjum í sumar. Það er G! Í Rokklandi í dag kl. 16.05 á Rás 2. Eins og margir góðir hlutir aðrir þá fæddist G! hálfpartinn óvart og upphafið má rekja til hljómsveitarinnar Clickhaze sem segja má að hafa verið einskonar Sykurmolar Færeyja ? hálfgerð súpergrúppa. Söngkona Clickhaze var kornung Eivör Pálsdóttir og frmkvæ…
  continue reading
 
Ásgeir Trausti kom eins og þruma úr heiðskíru lofti inn í íslenskt og reyndar líka alþjóðlegt tónlistarlíf fyrir áratug þegar hann gaf út plötuna Dýrð í dauðaþögn. Platan er ein af fimm mest seldu plötum íslenskrar útgáfusögu. Hinar eru: Gling Gló með Björk og tríói Guðmundar Ingólfssonar (1990), Vísnaplatan Einu sinni var með Gunna Þórðar, Tomma T…
  continue reading
 
Í Rokklandi í dag kl16.05 á Rás 2 veður boðið upp á brot af því besta frá Tónaflóði Rásar 2 á Arnarhóli í gær. Dagskráin var litrík og fjölbreytt - ljósin falleg og fólkið sömuleiðis. Í byrjun Þáttar segir Freyr Eyjolfsson okkur frá Elvis og hvað það var sem dró hann (hugsanlega) til dauða fyrir 45 árum síðan - þegar hann var aðeins 42 ára gamall.…
  continue reading
 
Við viljum trúa því að flestir landsmenn kannist við fjöllistamanninn Prins Póló sem hefur skemmt okkur íslendingum um árabil, og skapara hans og besta vin; Svavar Pétur AldísarogEysteinsson Häsler. Hann opnaði nýverið myndlistar og ljósmyndasýningu í Gerðabergi í Brieðholti. Hann er að vinna að músík þessa dagana með einni af uppáhalds hljómsveitu…
  continue reading
 
Bjartmar Guðlaugsson verður sjötugur á morgun og af því tilefni heldur hann afmælistónleika núna næsta laugardagskvöld, 18. Júní, með hljómsveitinni sinni Bergrisunum sem er mikið rokkband. Bjartmar fæddist 13. júní 1952 á Fáskrúðsfirði en þegar hann var 7 ára flutti fjölskyldan til Vestmannaeyja og bjó hann þar til tvítugs en þá flutti hann til Re…
  continue reading
 
Gestir Rokklands í dag eru feðgarnir Björgvin Halldórsson og Krummi Bjorgvinsson sem hafa á síðustu árum næstum runnið saman í eitt í músíkinni. Báðir byrjuðu þeir í rokkinu en kántrímúsík og kántrírokk er staðurinn sem þeir mætast á. Þeir er báðir Hafnfirðingar og í Hafnarfirði fer fram dagana 9.-11. júní, tónlistarhátíðin Kántrí-hjarta Hafnarfjar…
  continue reading
 
Í síðasta þætti heyrðum við brot úr viðtali við Rufus Wainwright sem heldur tónleika í Háskólabíói í kvöld! John Grant er sérstakur gestur og opnar tónleikana, en Rufus Wainwright er gestur Rokklands í dag. Tónleikarnir hér eru liður í sérstakri Rufus Wainwright hátíð sem hefur staðið yfir undanfarna daga. Það er hópur af aðdáendum Rufusar staddur …
  continue reading
 
Það hefur líklega ekki farið framhjá neinum að hljómsveitin ABBA, ein stærsta og vinsælasta hljómsveit sögunnar sendi frá sér plötu í fyrra, plötuna Voyage sem er fyrsta plötuna í heil 40 ár. Hún fór alla leið á toppinn á vinsældalistum víða um heim og fékk líka ágæta dóma. Núna um næstu hlegi verður svo ABBA Arena, nýja Abba-tónleikahöllin í Londo…
  continue reading
 
Gestur Rokklands í dag er Ólafur Arnalds sem er orðinn stórt nafn í hinum alþjóðlega tónlistarheimi. Hann hefur unnið til fjölda veðlauna víða um heim og núna í ár var hann tilnefndur til Grammy verðlauna fyrir tvö lög af nýjustu plötunni seinni, Some kind of peace, og hann er að fara núna loksins að fylgja henni eftir með tónleikaferðalagi um alla…
  continue reading
 
Úkraína og tónlist frá Úkraínu er í brennidepli í Rokklandi dagsins. Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, varð á föstudaginn fyrsti erlendi þjóðhöfðinginn til að ávarpa Alþingi Íslendinga. Hann sagði baráttu Úkraínu gegn innrás Rússa snúast um frelsið: ?Þetta land sem við eigum með réttu, og um menningu okkar.? Íslendingar og Úkraínumenn byggju við…
  continue reading
 
Magnús R. Einarsson fyrrum tónlistarstjóri Rásar 2 er gestaumsjónarmaður í Rokklandi í dag. Hann er með umfjöllun um ítalska stórsöngvarann Andrea Bocelli sem heldur tónleika í Kórnum í Kópavogi laugardaginn 21. maí nk. Bocelli þykir vera með eina fallegustu rödd heims og hefur selt yfir 90 milljónir platna á heimsvísu. Celine Dion hefur sagt að ef…
  continue reading
 
Loading …

빠른 참조 가이드